0 ISK
Velkomin inn á infraredsaunapod
Infrared SaunaPod er ekki bara hitatjald með stól. Hann sameinar 2000W öflugan hitara, infrared ljós 600–850 nm og lokað SaunaPod-rými sem byggir upp mikinn og stöðugan hita á stuttum tíma.
2000W hitari
Öflugur 2000W hitari sér um að hita poddinn hratt upp. Þú þarft því ekki að bíða lengi eftir að ná almennilegum sauna-hita.
Infrared 600–850 nm
Infrared SaunaPod notar rauð og nær-innrauð ljósbylgjulengd á bilinu 600–850 nm samhliða hitanum. Þannig færðu ekki eingöngu heitt loft og svitamyndun heldur einnig infrared ljós meðan á sessioninu stendur.
Alvöru hiti – allt að 85°C
Margir litlir ferðapoddar eru fyrst og fremst hannaðir fyrir mildan hita. Infrared SaunaPod getur náð allt að 85°C, þó þú þurfir alls ekki að nota hann svo heitan. Þú getur valið lægra hitastig fyrir rólega session eða hækkað hitann þegar þú vilt kröftugri svitamyndun.
Fljótur að hitna
Poddurinn getur farið upp í um 60°C á aðeins 5–7 mínútum, svo sauna-sessionið þarf ekki að verða klukkutíma verkefni áður en þú byrjar.
Sauna heima án þess að byggja sauna
Þú færð sauna-upplifun án þess að fórna heilu herbergi eða ráðast í dýrar framkvæmdir. Settu poddinn upp, tengdu hann við rafmagn og þú ert komin með þína eigin sauna.
Samanbrjótanlegur og færanlegur
Þrátt fyrir kraftinn er SaunaPod hannaður þannig að hægt er að brjóta hann saman, færa hann og geyma. Hann getur því verið heima, í bústaðnum eða farið með þér þegar það hentar.
Það er þessi blanda sem gerir Infrared SaunaPod öðruvísi:
2000W kraftur + allt að 85°C hiti + 600–850 nm infrared + hraður upphitunartími — í samanbrjótanlegum SaunaPod sem þú getur haft heima hjá þér.
Ekki bara ferðasauna. Þín eigin sauna — þegar þú vilt hana.
SaunaPod getur náð allt að 85°C. Byrjaðu á lægri hita og stilltu lotuna alltaf eftir eigin líðan.
Infrared SaunaPod sameinar öflugan 2000W hitablásara og infrared ljós 600–850 nm í lokuðu sauna-rými.
Hitablásarinn dregur loft inn, hitar það og dreifir heitu loftinu stöðugt um poddinn. Þannig byggist hitinn hratt upp og getur náð um 60°C á aðeins 5–7 mínútum.
Samhliða hitanum gefur infrared ljósið frá sér rauðar og nær-innrauðar ljósbylgjur á bilinu 600–850 nm. Ólíkt heitu loftinu, sem hitar líkamann fyrst og fremst utan frá, getur nær-innrautt ljós smogið inn í yfirborðsvefi húðarinnar, þar sem ljósorkan frásogast af sameindum og frumuhlutum.
Rautt og nær-innrautt ljós er rannsakað fyrir áhrif á frumustarfsemi og orkuframleiðslu frumna (ATP) og getur stutt við blóðflæði, bata vefja og eðlileg viðbrögð líkamans við bólgu og álagi.
Þú færð því tvær ólíkar tegundir örvunar á sama tíma:
Hitinn hækkar líkamshitann, eykur blóðflæði og kemur af stað öflugri svitamyndun.
Infrared ljósið veitir ljósorku sem frásogast í vefjum og getur stutt við frumustarfsemi og bata.
Útkoman er kröftug sauna-upplifun þar sem hiti og infrared ljós vinna saman — á meðan þú situr einfaldlega, slakar á og svitnar.
SaunaPod hitnar hratt, yfirleitt á um 5–10 mínútum eftir umhverfishita og valinni stillingu.
Hún er fyrst og fremst hönnuð til notkunar innandyra. Nota má hana úti við þurrar og góðar aðstæður, en inninotkun tryggir betri endingu.
Fyrsta uppsetning tekur yfirleitt 20–30 mínútur. Eftir notkun fellur klefinn saman í poka sem passar undir rúm eða inn í skáp.
Hún tengist venjulegu 220–240 V rafmagni og þarf ekki sérstaka raflögn.
Nei. Infrared SaunaPod notar álíka mikið rafmagn og mörg venjuleg heimilistæki.
2000W hitarinn er aðeins í notkun á meðan sauna-sessionið stendur og 30 mínútna session notar að hámarki um 1 kWh af rafmagni.
Þú getur því notið þess að vera með Infrared SaunaPod í fullri notkun án þess að hafa áhyggjur af rafmagnsnotkuninni.
Hljóðið er lágt og líkist mjúku viftuhljóði sem truflar yfirleitt ekki slökun.
Klefinn er úr Oxford-bómull og einangrandi efnum. Glugginn er úr food-grade plastefni sem er hannað fyrir hita og daglega notkun.
Hönnun klefans og hitablásarinn vinna saman að jafnri og stöðugri hitadreifingu frá toppi til botns.
Regluleg sauna er ekki bara 30 mínútur af hita og svita. Með endurtekinni notkun aðlagast líkaminn hitanum og það getur haft áhrif á blóðrás, æðakerfi, vöðva, streitukerfi og svefn.
Hjarta og æðakerfi
Hitinn víkkar æðarnar og eykur blóðflæði til húðarinnar. Hjartslátturinn hækkar og hjartað dælir meira blóði á mínútu. Með reglulegri notkun hefur sauna verið tengd bættri starfsemi æða og lægri blóðþrýstingi hjá sumum einstaklingum.
Betra blóðflæði
Þegar líkaminn hitnar eykst blóðflæði verulega út í húðina. Reglulegt hitaálag þjálfar líkamann í að víkka æðarnar og stjórna blóðflæði og hita á skilvirkari hátt.
Minni vöðvaspenna og stífleiki
Hitinn eykur blóðflæði til vefja og getur hjálpað til við að minnka tímabundið vöðvaspennu, eymsli og stífleika. Þess vegna getur sauna verið sérstaklega notaleg eftir æfingar eða langan dag.
Heat-shock proteins – frumurnar bregðast við hitanum
Hitaálag örvar svokölluð heat-shock proteins (HSP). Þessi prótein gegna mikilvægu hlutverki í frumunum, meðal annars við að vernda prótein, viðhalda réttri byggingu þeirra og bregðast við frumuálagi.
Djúp slökun og streitulosun
Sauna er fyrst stutt, stjórnað hitaálag. Þegar sessioninu lýkur og líkaminn byrjar að kólna getur parasympatíska taugakerfið — „rest and digest“ kerfið — orðið meira áberandi. Margir finna því fyrir djúpri líkamlegri og andlegri ró eftir sauna.
Betri svefn
Eftir sauna byrjar líkamshitinn smám saman að lækka aftur. Sú kæling, ásamt slökuninni eftir hitann, getur auðveldað líkamanum að fara yfir í hvíld og svefn og reglulegir notendur lýsa oft betri svefngæðum.
Öflug svitamyndun
Með reglulegri hitanotkun verður líkaminn betri í að bregðast við hita og getur byrjað fyrr og svitnað skilvirkar til að kæla sig. Með svitanum tapast bæði vatn og steinefni, svo góð vökvun skiptir máli.
Húð og yfirborðsblóðrás
Í hitanum eykst blóðflæði til húðarinnar og svitaframleiðslan verður mikil. Eftir sauna og sturtu upplifa margir húðina hlýja, mjúka, ferska og hreina.
Betri aðlögun að hita
Regluleg sauna getur gert líkamann skilvirkari í hitastjórnun. Með tímanum getur hann brugðist fyrr við með auknu blóðflæði og svitamyndun og þannig tekist betur á við hitaálag.
Regluleg sauna snýst því ekki bara um hvernig þér líður þessar 30 mínútur inni í hitanum.
Þú ert að gefa hjarta- og æðakerfinu hitaörvun, auka blóðflæði, virkja hitaviðbrögð frumnanna, losa um vöðvaspennu og enda sessionið í djúpri slökun.
Og kannski er það besta við þetta allt: þú þarft bara að setjast inn, loka hurðinni og leyfa hitanum að vinna.
Flestum hentar 15–30 mínútna lota. Byrjendur ættu að byrja styttra, drekka vel og hlusta á líkamann.
Leitaðu ráða hjá heilbrigðisstarfsfólki ef þú ert barnshafandi, með hjarta- eða æðasjúkdóm, gangráð, hita, veikindi eða ástand sem hefur áhrif á hitastjórnun líkamans.
Rafbúnaður myndar rafsegulsvið líkt og önnur heimilistæki. Notaðu búnaðinn samkvæmt leiðbeiningum og haltu ráðlagðri fjarlægð frá hitara.
Þurrkaðu gólf og snertifleti eftir notkun og skildu hurðina opna þar til klefinn er alveg þurr. Ekki nota sterk eða ætandi hreinsiefni.
Hitarinn er sérhannaður fyrir SaunaPod-kerfið. Hafðu samband við okkur vegna varahluta eða þjónustu.
Þurr sána notar hitara og lágan raka, ólíkt gufusánu sem byggir á vatni og gufu.
Þegar þú sest inn í heita saunu gerist miklu meira en að þú „svitnir aðeins“. Líkaminn fer í öflugt hitaviðbragð: húðin hitnar, æðarnar víkka, blóðflæðið eykst og hjartað byrjar að dæla hraðar til að flytja hita út að húðinni.
Eftir nokkrar mínútur ertu komin í allt annað líkamlegt ástand:
Og það sem mér finnst eiginlega mest heillandi við saunu:
Þú þarft ekki að „gera“ neitt.
Þú sest inn. Hitinn hækkar. Hjartað bregst við. Æðarnar víkka. Blóðflæðið eykst. Svitalosunin fer af stað. Frumurnar bregðast við hitanum. Vöðvarnir hitna. Svo kemur kælingin — og líkaminn færist yfir í bata.
Það er ástæðan fyrir því að góð sauna-session getur látið þig koma út með þessa mjög sérstæðu tilfinningu:
Heit, létt, mjúk í líkamanum, afslöppuð og eins og kerfið hafi verið endurræst.
Já — líkaminn brennir kaloríum á meðan þú ert í sauna.
Þegar hitinn hækkar þarf líkaminn að vinna meira til að halda kjarnhitanum stöðugum. Æðarnar víkka, blóðflæðið til húðarinnar eykst, hjartað dælir hraðar og svitaframleiðslan eykst til að kæla líkamann.
Allt þetta krefst orku og eykur kaloríubrennslu umfram venjulega hvíld.
30 mínútur í sauna: um 100–150 kaloríur
Brennslan ræðst meðal annars af líkamstærð, hitastigi og því hversu mikið hjartslátturinn hækkar.
Sauna kemur þó ekki í stað hreyfingar og þyngdin sem getur horfið strax eftir mikla svitamyndun er að mestu vökvatap, ekki 100–150 kaloríur af líkamsfitu.
En á meðan þú situr kyrr er líkaminn svo sannarlega ekki aðgerðalaus: hjartað vinnur meira, blóðrásin eykst og hitastjórnun líkamans notar orku.
30 mínútur þar sem þú situr, slakar á, svitnar — og líkaminn vinnur á meðan.